Kvennó
er á fullu í náminu og er bara að læra skemmtilega hluti ! :P vá hvað er gaman að vera í 4.bekk !!

Og Sem 4 bekkingur þá gafst mér sá heiður að busa nýnema Kvennó og gerði ég það stolt með glæsibrag !
Nú sjáið þið kannski ástæðu þess að ég kaus málabraut ... ég yðri ekkert svo girnilegur læknir
Allavega nenni ekki meir verð að sofa enda skóli á morgun ... og já meðan ég man þá hef ég víst ásamt 3 öðrum tekið að mér að stjórna leikélagi Kvennó þetta árið ...vona að það muni ganga vel !

Thelmía Kveður

Haldið út í heim !

Jæja gott fólk !!
Nú er komið að því !
Tyrkland er hér handan við hornið og bíður mín með sínar sólarstrendur.

og Helen er komin í leitirnar eftir 10 mánaða fjarveru !
Frábært að hitta hana aftur var búin að sakna hennar mikið !

Svo var Harry Potter 7 að koma út í síðustu viku, fékk mér hana strax og hef nú klárað bókaseríuna. Það var þvílíkt skrítin tilfinning að loka henni, vitandi að þessi væri sú síðasta....
Þetta eru svona aðal fréttirnar hér á bæ , ákvað að láta myndirnar frekar tala sínu máli því penninn í mér er sjaldan upp á sitt besta svona yfir höfuð.
Jæja ég læt vita af mér þegar ferðalaginu er lokið enda eru líklega flestir sem skoða þessa síðu að koma mér mér í þessa blessuðu ferð .
Kær Kveðja
Thelmia Fagra
Sumarið er tíminn
Heil og Sæl !
Ég er greinilega ekki nógu dugleg við að blogga hérna. Sumarið er nú komið og vinnan með því. Er bara frekar sátt við lífið þessa stundina og get í raun ekkert kvartað. Veðrið er búið að vera ágætt núna upp á síðkastið og ég fór meira að segja í sund um daginn og ég sem fer aldrei í sund ! Annars hefur nú freka lítð gerst svona vert að segja frá hér. Brúðkaup síðasta laugardag í fjölskyldunni og mikið fjör þar á ferð og svo náttúrulega sumarbústaðarferð okkar vinkvennanna .. Fjúff það er þá greinilega langt síðan ég bloggaði fyrst að ég er að segja núna frá þessu.
En já svo eru nú langflestir í kringum mig búnir að strjúka eitthvað út í sólina. Ma og Pa fóru til Barcelona og skemmtu sér vel, Kórinn fór á sama tíma til Madríd og var það víst stórskemmtilegt (ég var með í anda) og svo er hún Harpa farin til Þýskalands með familíunni og kemur ekki fyrr en 6 júlí. Heimir er svo að fara á Hróaskeldu á morgun og heldur svo beint til Mexíco eftir hana. Helen kemur svo heim 17 júlí og þá verður sko gaman !!
Og eftir þetta allt saman þá kemur loks að mér ... Tyrkland bíður mín með hita og strendur (og jafnvel sólgleraugu með styrkleika en það er allt annað mál) Tvær vikur af afslöppun og gleði með vinunum, og ekki má gleyma dansstemmningunni ;) Þannig að þetta sumar virðist ætla að bjóða upp á mikla gleði og tímum til að njóta lífsins því eins og svo oft hefur komið fram er sumarið tíminn.
Thelmia Fagra Kveður 
Ein góð af stelpunum úr bústaðnum
Fyrirsagnir eru villandi
Og til hamingju með prófastress og annað þvíumlíkt.
Þetta er nú allt að koma og eru nú aðeins tvö próf eftir.
En þetta á ekki að vera aðalinnihald þessa bloggs. Þó svo lítið annað sé á boðstólnum að tala um þessa dagana.
En svo eru nú kosningar og Eurovision líka til staðar til að stytta manni stundirnar.
Satt að segja er ég orðin hundleið á þessum sleikjuskap í stjórnmálafólkinu og vill geta horft á sjónvarpið í friði án þess að um það bil tuttugu þeirra brosi smeðjulega í andlitið á mér taki barn upp á afturfótunum og kyssi á þeim bossann segi mér svo með tilgerðarlegustu setningum sem ég hef heyrt að kjósa sig því þá verði allt í heminum betra.
Gefið mér heldur eitthvað annað.
Jæja nóg um þetta
Best að fara að læra aðeins
Thelmía Fagra Kveður

ARG ARG
Hvernig stendur á því að alltaf sem ég byrja að blogg þá fer tölvan í fokk. æji ég nenni ekki að pæla í þessu lengur. Ég reyni bara að blogga hratt og stutt og þá verða allir ánægðir, ég, almenningur og tölvan sjálf sem hefur greinilega eitthvað á móti því að ég sé að tjá mig hérna.
Moving on ... Peysufatadagurinn var um daginn og það var mjög hressandi að dansa í drullu roki og rigningu, ekta íslenskt :) Svo var skemmt sér fram eftir nóttu með hinum krökkunum ;)
Svo nú eru prófin að byrja og ég ætla að hugsa sem minnst um það .. einbeita mér á sumarið, gott veður góðir vinir og svo auðvitað Tyrkland, ekki má gleyma heimkomu Helenar og útgáfu síðustu Harry Potter bókarinnar. Þetta verður frábært sumar :)
En já nú ætla ég að reyna að fara að fylgjast aftur með í tölfræði.
Tútúlú fólk og vonandi hafnar tölvan þessu bloggi ekki
Kveðja
Thelmia Fagra ![]()

Ég og Inga að Úberpósa
Mikið að Gera !!!
Þetta eru semsagt æfingarnar fyrir Hroki og Hleypidómar sem hafa stuðlað að þessari fjarveru minni enda er frumsýningin núna á miðvikudaginn 7. mars.
Ég leik þann skemmtilega karakter Lady Catherine DeBourgh og er það hið besta mál og ég hvet ykkur endilega til að mæta og sjá þessa skemmtilegu sýningu !
Jæja eftir svona langan tíma er allt afstaðið eins og Berlínarferðin, Árshátíðin og Afmælið mitt
Þessi Berlínarferð er það besta í heimi og bekkurinn náði allur rosalega vel saman og vil ég hér með þakka öllum fyrir þessa frábæru ferð ... þið eruð yndisleg
Árshátðin var góð og fékk ég loksins að gista ! það var æði nema að hljómsveitin var ekkert sérstök, það var góður fílíngur á öllum og allir skemmtu sér vel... að ég held
Svo var afmælið mitt haldið ... mjög fínt og ég skemmti mér vel ... takk fyrir gjafirnar allir
jæja núna ætla ég að fara í hádegismat
Lofa að vera duglegri að blogga þegar leikritið er yfirstaðið
Kveðja
Thelmia Fagra

Bryndís og Dísa sváfu inni á klósettinu í Berlín því þær eru Rauðhærðar !
Jæja þarf ekki að rita eitthvað hér
Hæhæ og halló
Ætli maður þurfi ekki að skrifa nokkrar línur hérna... lítið að gerast á þessum bæ frekar en fyrri daginn.
Við bekkurinn erum að fara til Berlínar 2.febrúar og sú ferð nálgast. Bara tvær vikur uss uss uss. Svo fer nú afmælið mitt að koma líka nú já og árshátíðin :D Það eru semsagt bjartir og skemmtilegir dagar framundan sem er svona góð tilbreyting frá dimma vetrinum og þunglamalegu byrjun ársins.
Nú er leikritið komið á fullt skrið og það er mikið fjör, ekki ennþá búið að láta okkur fá hlutverk en það hlýtur að fara að gerast bráðlega. Ég er bara þó nokkuð vongóð og eiginlega nokkuð sátt með hvað sem ég fæ. Ég læt ykkur hérna svo vita hvað það verður og svoleiðis :P
Nú er önnur pæling í gangi hjá mér.. hvort ég eigi að taka þátt í Rymju , söngvakeppni Kvennó ... einhverjar skoðanir á því kæra fólk ?
jæja ætli ég láti þetta ekki bara gott heita .... þangað til næst
Thelmía Fagra
2007
Ég hef aðeins þetta að segja :
I believe that imagination is stronger than knowledge -- myth is more potent than history -- dreams are more powerful than facts -- hope always triumphs over experience -- laughter is the cure for grief -- love is stronger than death.
-Robert Fulghum
Ég vona að hann hafi rétt fyrir sér...
Nýárskveðja
Thelmía Fagra
Fólk Er Fífl ?
ÉG : Góðan daginn (tek vöruna)
Viðskiptavinur: ...
ÉG: Er þetta gjöf
Viðskiptavinur: HA ?
ÉG: er þetta gjöf?
Viðskiptavinur: Muldrar játandi og horfir allt annað en í áttina til mín
ÉG: (set innsigli, skanna í tölvuna og set vöruna í poka) ... það eru 4698 krónur
Viðskiptavinur: (búinn að vera að ota kortinu í áttina að mér allann tímann sem ég var að skanna,merkja og setja vöruna í poka fær loksins að rétta mér kortið sitt)
ÉG: (renni kortinu í gegn og rétti viðskiptavininum strimilinn sem hann á að skrifa á)
Viðskiptavinur: (tekur smá stund í að átta sig að hann þarf að skrifa, reynir með engum árangri að finna penna, fær penna afhendan af mér og byrjar að skrifa án þess að vera búinn að ýta á dótaríið efst á pennanum, fattar það svo og lagar það og byrjar að skrifa, tekur sér sinn tíma að klára allt nafnið og gerir punkt.)
ÉG: rétti viðskiptavininum kortið og útprentanir og segi gjörðu svo vel )
Viðskiptavinur: Muldrar takk
Ég: takk fyrir og Gleðileg Jól
Viðkskiptavinur: ..... (labbar í burtu)
ég tek það fram það þetta eru alls ekki allir sem eru mínir viðskiptavinir og eru margir þeirra mjög kurteisir og hressir ... en þetta er alveg að fara með mig ...
ENDILEGA VERIÐ KURTEIS VIÐ AFGREIÐSLUFÓLK ... ÞAÐ Á ÞAÐ SKILIÐ !
GLEÐILEG JÓL ALLIR SAMAN !!
Jólakveðjur
Thelmía Fagra
Sorry Gyða ... varð að stela þessu :P
Sorry Gyða mín mér fannst þetta svooo sniðugt að ég varð bara taka þetta og prófa :D
YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE?
So, here's how it works:
1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Put it on shuffle
3. Press play
4. For every question, type the song that's playing
5. When you go to a new question, press the next button
6. Don't lie and try to pretend you're cool...
(7. But what if I was cool? Director's Choice, not the manatee's)
Opening Credits:
Fausse Promesse - Marcel Martel (já bara helvíti gott .. svona easy going lag ...og á frönsku !! ;) )
Waking up:
U know whats up - Donell Jones (u know whats up? ... hmm ...me maybe ... waking up ?? :P)
First Day At School:
Emotion - Destiny's Child (já... bara drama og læti .... passar ekki alveg við fyrsta skóladaginn... nema kannski nafnið á laginu)
Falling In Love:
Endlessly - Muse (- Hopelessly I'll love you endlessly
Hopelessly I'll give you everything
But I won't give you up ... nokkuð gott :P )
Fight Song:
Holiday - Green day ... (hmm silly dans slagsmál .. ekkert fútt í þessu )
Breaking Up:
Goodnight - Evanescence (hmmm nei passar ekki alveg ... but we sang goodnight but not goodbye...uuu nei)
Prom:
Listen to the rain - Evanescence (kórlag ... rólegt um rigningu .. og prom ... uuu nei)
Life:
Farther away - Evanescence ... (soldið drungalegt ... and now I see what I really am ... a thief, A whore and a liar ... hmmm einhver skilaboð ?? )
Mental Breakdown:
You - Lucy Pearl (hmmm eitthvað RnB lag úr save the last dance ... crazy eða ?? )
Driving:
Don't mess with my man - Lucy Pearl ( You heard me .. .Fooo Don't mess with my man ! )
Flashback:
Welcome to the black parade - My Chemical Romance (When I was a young BOY... flashback en vitlaust kyn .. heheheh )
Getting Back Together:
Get it on ... Tonite - Montell Jordan - (okey make up sex or something ... hehe )
Wedding:
Get the party started - P!nk ( hmmm las vegas brúðkaup í bílalúgu eða ? )
Birth Of Child:
This is how I dissapear - My chemical Romance (já hver veit ... ?)
Final Battle:
Time after time - maniggi ( já rólegt battle ... MJÖG Rólegt ábyggilega slóv mósjón)
Death Scene
Bounce - System of a down ( Crazy shit song ... svaka dauði !!! við erum að tala um graðhestarokk af bestu gerð ! )
Funeral Song:
Total Eclipse of the Heart - Bonnie Tyler ( júlíana og Dísa völdu þetta lag pottþétt !! )
End Credits:
Broken - Seether feat. Amy Lee (já kósí endir ... kannski alveg við hæfi en fínt )
Vá þetta var gaman ... langar að gera þetta aftur og aftur og aftur og aftur .. hehe :P
Takk Fyrir
Thelmía Fagra
